Lexía

Aðalsíða


Lexía fæddist á þeim eftirminnilega degi, gamlársdegi 2010. Hún er úr ræktun Guðlaugar Gísladóttur og Sigrúnar Guðlaugardóttur - Leynigarðs Labradors - dóttir Dolbia Somebody Loves Me og blessunarinnar hennar Þulu, sem þá var í eigu Hjalta Brynjars míns og Sædísar Alexíu, konu hans. Lexía ólst upp hjá Guðlaugu og Sigrúnu, vann til verðlauna innan vébanda HRFÍ, eignaðist 18 hvolpa og afkomendur hennar eru fjölmargir.

Lexía kom til mín í júlí 2017, saman áttum við fjögur yndisleg ár en þann 28. júlí 2021 fórum við í okkar síðasta göngutúr, enda var heilsa hennar farin að gefa sig og óhjákvæmilegt að lina þjáningar hennar. Ég sakna Lexíu óendanlega mikið og eins og segir í alkunnu lagi um Nínu þá eru dagarnir eilífð án hennar og kvöldin köld og tómleg án hennar. Eftir lifa ljúfar minningar um einstakan hund, minn allra besta, nánasta og traustasta vin.